Ábending um barnaníðsefni af börnum yngri en 18 ára
Þú getur sent ábendingu algjörlega nafnlaust.
Engar upplýsingar (eins og IP tölur) vistast eða sendast með ábendingunni.
Þú getur fyllt út nafn og/eða leið til að ná í þig (tölvupóstur/símanúmer) en það er þitt val.
ATHUGA
Þessi síða er verk í vinnslu. Ábendingarformið er ekki virkt.
Ef þig grunar að barn sé að verða fyrir eða hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi biðjum við þig að tilkynna það strax til barnaverndar.
Ábendingin verður yfirfarin af sérþjálfuðum greiningaraðila sem metur hvernig skuli bregðast við henni. Ábendingalína Netvís vinnur í nánu samstarfi við lögreglu í öllum málum sem varða barnaníðsefni.
Ef efnið er rakið til annars lands sendum við ábendinguna áfram til ábendingalínu í viðkomandi landi. Netvís er traustur samstarfsaðili INHOPE, alþjóðlegs nets ábendingalína sem vinnur að því að útrýma barnaníðsefni á netinu.
Við bendum þér á 1717.is og 112.is ef þú þarft stuðning eða frekari upplýsingar og fræðslu vegna málsins. Jafnframt má leita til Netvís með því að senda póst á netvis@netvis.is en vinsamlegast sendið ekki barnaníðsefni í tölvupósti, aðeins hér á tilkynningasíðu ábendingalínu Netvís.