Vantar þig aðstoð?

1717 hjálparsími

112 í neyð

Ábendingalína netvís

ATHUGA

Þessi síða er verk í vinnslu. Ábendingarformið er ekki virkt.

Ábendingalína Netvís tekur við ábendingum um hvers kyns barnaníðsefni. Það geta til dæmis verið myndir eða myndbönd á netinu sem sýna kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, samskipti þar sem einhver hefur nálgast barn í kynferðislegum tilgangi eða annað efni sem tengist kynferðisofbeldi gegn börnum á Íslandi eða í öðrum löndum.

Ef þig grunar að barn sé að verða fyrir eða hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi biðjum við þig að tilkynna það strax til barnaverndar.

Barnaníðsefni af börnum yngri en 18 ára

Sendu okkur vefslóð að efninu sem þig grunar að innihaldi barnaníðsefni. Það getur til dæmis verið hlekkur á vefsíðu, skráageymslu, spjallborð eða spjallrás.

Senda ábendingu um barnaníðsefni af börnum yngri en 18 ára hér

Við vitum að það getur verið mjög erfitt að sjá myndir eða myndbönd sem sýna kynferðisofbeldi gegn börnum. Engu að síður er afar mikilvægt að tilkynna slíkt efni svo hægt sé að bregðast við, stuðla að því að það verði fjarlægt og koma í veg fyrir áframhaldandi dreifingu þess.

Við bendum þér á 1717.is og 112.is ef þú þarft stuðning eða frekari upplýsingar og fræðslu vegna málsins. Jafnframt má leita til Netvís með því að senda póst á netvis@netvis.is en vinsamlegast sendið ekki barnaníðsefni í tölvupósti, aðeins hér á tilkynningasíðu ábendingalínu Netvís.

Ábendingin verður yfirfarin af sérþjálfuðum greiningaraðila sem metur hvernig skuli bregðast við henni. Ábendingalína Netvís vinnur í nánu samstarfi við lögreglu í öllum málum sem varða barnaníðsefni.

Ef efnið er rakið til annars lands sendum við ábendinguna áfram til ábendingalínu í viðkomandi landi. Netvís er traustur samstarfsaðili INHOPE, alþjóðlegs nets ábendingalína sem vinnur að því að útrýma barnaníðsefni á netinu.

Fyrirspurn um fræðslu

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.

Stjörnumerktar* línur er nauðsynlegt að fylla út.

Við höfum móttekið beiðnina!

Vilt þú fá nýjustu fréttir og fræðsluefni?

Fylltu út formið með upplýsingum um þig og við munum hafa samband við þig við fyrsta tækifæri.